Flokkur: SHIMMER NAGLASKÓLI

HÆHÆ! Verið velkomin í SHIMMER Naglaskóla! 

SHIMMER naglaskóli bíður uppá alls kyns týpur af námi. Kennt er á gæðavörur frá Glitterbels sem eru ekki bara fallegar heldur eru gæðin uppá 10! 

Glitterbels er með puttann á púlsinum varðandi allt í naglaheiminum. Við leggjum mikið uppúr því að kenna grunninn vel ásamt því að kenna ykkur lykilinn að því að ná samkeppnisforskoti á Íslandi sem naglafræðingur.  Einnig leggjum við mikið upp úr því að útskrifa naglafræðinga sem eru tilbúnir og öruggir og endurspegla námið það. Við munum kenna ykkur allt sem þið þurfið að vita <3

Katla Halldórsdóttir er eigandi og kennari í skólanum og er hún sjálf með mikla reynslu og margar diplómur í faginu. Ásamt því er hún með kennsluréttindi hjá Glitterbels. Hægt er að skoða neglur eftir hana inná Instagram reikningi hennar @neglurkatla. Einnig er hægt að senda henni skilaboð ef spurningar vakna varðandi námið! 

Hrafntinna Eir Risten er kennari í skólanum og sérhæfir hún sig í BIAB nöglum og kennir BIAB námskeið í skólanum. Hrafntinna er með kennsluréttindi hjá Glitterbels og gerir einstaklega snyrtilegar og fallegar neglur. Hægt er að skoða neglur eftir hana á instagram reikningi hennar @neglurbyhrafntinna.

Guðbjörg María Onnoy er einnig kennari í skólanum og sérhæfir hún sig í akrýl! Guðbjörg er með einstakt auga fyrir skrauti og öllu extra. Einnig er hún með gríðarlega reynslu í að vinna með akrýl og byggir einstaklega fallegar neglur. Guðbjörg er með kennsluréttindi hjá Glitterbels. Hægt er að skoða neglur eftir hana á instagram reikningi hennar @onnoyneglur.

Við getum ekki beðið eftir að kynnast ykkur og kenna ykkur þetta skemmtilega fag sem naglafræðin er <3

Fallega aðstaðan okkar er í Grafarholti <3

Sendið okkur endilega netpóst á shimmericeland@gmail.com eða skilaboð á Instagram @neglurkatla fyrir frekari upplýsingar.

 ATH! 16 ára aldurstakmark er í námið!

Upplýsingar um hvert og eitt námskeið má finna í lýsingu undir hverju námskeiði. Ef námskeiðið er uppselt, sendið okkur endilega netpóst á shimmericeland@gmail.com til að skrá ykkur á biðlista fyrir það næsta <3

Hægt að hafa samband í síma 8215173 - Katla

 

 

 

4 vörur
  • Námskeið - BRUSH ON BUILDER - BYRJENDUR
    Venjulegt verð
    220.000 kr
    Útsöluverð
    220.000 kr
    Venjulegt verð
    Stykkjaverð
    per 
    Uppselt
  • Námskeið - BRUSH ON BUILDER GEL - fyrir lærða naglafræðinga
    Venjulegt verð
    90.000 kr
    Útsöluverð
    90.000 kr
    Venjulegt verð
    Stykkjaverð
    per 
    Uppselt
  • Námskeið- AKRÝLL - Byrjendur
    Venjulegt verð
    430.000 kr
    Útsöluverð
    430.000 kr
    Venjulegt verð
    Stykkjaverð
    per 
    Uppselt
  • Námskeið - AKRÝLL - fyrir GEL naglafræðinga
    Venjulegt verð
    195.000 kr
    Útsöluverð
    195.000 kr
    Venjulegt verð
    Stykkjaverð
    per 
    Uppselt