HARD GEL - BYRJENDANÁMSKEIÐ
ATH NÝJI DREAM CURE LAMPINN KEMUR Í ÖLLUM KITTUM HÉR EFTIR
3 DAGAR YFIR 3 VIKNA TÍMABIL
(16:00 - 22:00) KVÖLD
(12:00-17:00) DAG
TAKMARKAÐ PLÁSS, AÐEINS SEX Á HVERJU NÁMSKEIÐI
ATH EF ÞÚ VILT NÝTA ÞÉR STYRK STÉTTARFÉLAGA ÞARF AÐ SKRÁ SIG FYRIR 1 júní🩷 ÞANN 1 JÚNÍ TAKA Í GILDI NÝJAR REGLUR VARÐANDI STYRKI - skoða
ATH! NÁMIÐ ER LENGRA EN 3 VIKUR ÞVÍ KLÁRA ÞARF PRÓF OG SKIL Á LOKAVERKEFNUM TIL AÐ ÚTSKRIFAST!
Langar þig að læra að gera gelneglur?
💗
VERÐ FYRIR NÁMSKEIÐ
417.000kr
Þetta námskeið er ætlað byrjendum sem langar að vinna með hart gel og gellökk. Þú þarft enga fyrri reynslu eða diplómu til að skrá þig í þetta nám.
Allir nemendur fá aðgang að:
facebook hóp
appi sem heldur utan um verkefnaskil og framgang
kennslumyndbönd
hard gel hefti með öllum upplýsingum
ofl!!
Námið eru 3 kennsludagar (dagur 1 og dagur 2 eru í sömu viku en dagur 3 verður tveimur vikum eftir dag 2). Skila þarf heimavinnu fyrir hvern námskeiðsdag auk þess að ljúka "Maria Newman Nail Knowledge" kúrsinum með a.m.k. 8 í einkunn (tekur kúrsinn á þínu hraða á netinu. Kúrsinn er á ensku og honum fylgja góð myndbönd og skýringarmyndir). Allir sem ná prófinu og verkefnunum fá viðurkennda alþjóða diplómu sem naglafræðingar í hard geli!
Við mælum með að klára lokaverkefnin sem þarf að skila til að standast kúrsinn á innan við 6 mánuðum frá skráningu!
Við útskrift úr þessu námi færðu 4 diplómur (Hard gel, Gellökkun, Efile og Maria Newman)
Þessu námskeiði fylgir Maria Newman BEM Online Training Course Nail Knowledge (andvirði 20.000kr). Þar er farið yfir allt sem þú þarft að vita um heilsu (health), öryggisatriði (safety), vöruvitund (product knowledge) og uppbyggingu (anatomy) naglarinnar!
Á þessu námskeiði er kennt á Hard gel og farið verður yfir eftirfarandi:
Maria Newman Online training course, efnin sem við vinnum með, hreinlæti og 3 stig hreinsunar.
Dagur 1- Gellakk
Undirbúningur (bor)
Gellakk - ásetning (einlita neglur ,french og skraut)
Fjarlæging
Dagur 2 - Gelneglur - pure sculpt hard gel
Undirbúningur (bor)
Allt um tips
Shape og hvernig móta á nöglina (almond,square ofl...)
Allt um byggingu nagla
Ásetning
Hvernig á að vinna með hart gel
Þjölun og hvernig á að gera fullkomið form
Litur og french
Dagur 3 - lagfæring og fjarlæging
ATH! Mæta þarf með neglur með vöxt (ásetning frá fyrri tíma) til að hægt sé að æfa sig!
Lærum að lagfæra (taka loft) og koma rétta forminu á nöglina aftur
Lærum að fjarlægja gelið af og setja nýtt
Ásetning á geli á lagfærða nögl (lærum rétt magn)
Þjölun
Umhirða
Einnig lærir þú öll "tips and tricks" til þess að ná samkeppnisforskoti sem naglafræðingur á Íslandi!
Samhliða náminu verður kennt á bor (efile) og nemendur útskrifaðir með efile diplómu.
GLÆSILEGUR VÖRUPAKKI FYLGIR ÞESSU NÁMSKEIÐI!
Í vörupakkanum er allt sem þú þarft í ásetningu og fjarlægingu.
Bor að andvirði 45.000kr innifalinn
Í skólanum notist þið við ykkar eigin neglur eða gervineglur en skylda er að nota módel í verkefnum heima fyrir<3
Hægt að greiða í eingreiðslu eða með raðgreiðslum Teya. Þegar gjaldið er greitt ertu komin/nn með pláss á námskeiðinu. Namskeið fæst ekki endurgreitt.
ATH! Hægt er að sækja um styrk hjá stéttarfélagi með kvittun námskeiðsins!
Endilega bætið ykkur inná síðu skólans á Facebook fyrir áframhaldandi stuðning!
Allir sem hafa gengið frá skráningu og greiðslu fá netpóst frá okkur með nánari upplýsingum um námskeiðið þegar nær dregur! <3
Kennari : Katla Halldórsdóttir (@neglurkatla)





